
Okkar Þjónusta
Hér fyrir neðan eru upplýsingar sem ætti að gefa þér betri skilning á því sem við gerum hjá Eilíf Skíði. Ferlið er skipt í 4 hluta og allir eru jafn mikilvægir til að gera okkar hugmynd að veruleika. Ef þú ert með einhverjar spurningar eða ábendingar ekki hika við að hafa samband.

01
Fyrst
Við byrjum á því að finna skíði sem hefðu annars verið hent á urðunarstað, förum með þau í vöruhúsið okkar og gerum þau tilbúin til endurnýtingu. Vörurnar eru fyrst flokkaðar eftir stærð, tegund og ástandi, síðan eru skíðin gerð tilbúin fyrir framleiðslu.
02
Framleiðsla
Skíðin eru skorin í sundur í mismunandi stærðir eftir vörum og það sem verður eftir af skíðinu eins og bindingarnar eru settar í endurvinnslu. Skíðin eru þá pússuð og aukahlutirnir festir á skíði.


03
Markaðsetning
Þriðja skrefið í ferlinu er að auglýsa vörurnar með nokkrum mismunandi auglýsingarherferðum. Við nýtum okkur samfélagsmiðla og gervigreind til að hjálpa okkur að markaðsetja til rétta markhóps.
04
Afhending
Þegar kaupandinn er búinn að greiða fyrir sína vöru fer sendingarferlið í gang. Við sendum vörurnar hvert á land sem er. Frí sending er á höfuðborgarsvæðinu en fyrir sendingar út á land greiðir kaupandin fyrir flutning hjá flutningstöð ( Flytjandi / Landflutningar ).


.jpg)